24.01.2012 16:25
1 Dagur í Langá 2011

Allt í keng..
16.01.2012 12:38
Féttir
Samkvæmt heimildum sem byrtar voru á heima síðu félagsin kemur framm að ásókn var með ágætis prýði og bárust alls 2060 umsóknir inn til félagsins.
Úthlutunar-vinnan er kominn á fullt og meiga félagsmenn vera viðbúnir símtölum á næstu dögum
Her má sjá fallegan streng í Fáskrúð (Stebbastrengur)
Við Stórlaxar sóttum um holl í Fáskrúð snemma júlímánaðar og bíðum spenntir
eftir niðurstöum frá félaginu
bestu kveðjur Nóri Nutt
arnor@isfjord.net
13.01.2012 11:03
Skemmtilegt
Félagsheimili Fluguhnýtara 14 jan kl. 13.00 - 15.00......
11. janúar 2012
Hluti af Stangveiðifélagi Stórlaxa ætla að mæta.


11.01.2012 20:54
útsala
Útsala Veiðiflugna hófst föstudaginn 6 janúar.
Við verðum með frábær tilboð á stöngum frá Guideline. Act4 stöngin og Exp3 stöngin verða á 35% afslætti á meðan byrgðir endast og 20% afslátt af öllum línum.
Það verða 2 vöðlu jakkar á útsölu, Primaloft jakkin frá Guideline, vöðlur frá Patagonia og þar eigum við löngu stærðirnar fyrir stóru strákana ásamt góðu úrvali af veiðifötum. Þessar vörur verða á 30 - 40 % afslætti.
Við bjóðum 25% afslátt af Bernadelli hálf sjálfvirku byssunum og 40% af öðrum skotveiðivörum.Þetta eru tilboð sem vert er að skoða.
Veiðiflugur halda áfram að gera góða hluti í hnýtingunum.
Nú höfum við sett hnýtinga námskeiðin á netið hjá okkur og byrjum með byrjenda námskeiðum 11 og 12 janúar og 16 og 17 janúar. Í kjölfarið fylgir svo framhalds námskeið síðar í janúar.
Lýsing á námskeiðunum er eftirfarandi....
Byrjendanámskeið.
Farið verður yfir öll helstu grunnatriði í fluguhnýtingum. Byrjað verður á einföldum silungapúpum síðan verður farið í straumflugur og endað á laxaflugum.
Framhaldsnámskeið.
Kennt verður að hnýta flóknari laxa og silungaflugur, einnig verða hnýttar túbur.Farið verður bæði í hefðbundnar sökkvandi túbur og gárutúbur, svo endum við á Temple dog.
Kennari er Óskar Páll Sveinsson sem er landsþekktur fluguhnýtari og veiðimaður. Námskeiðið verður haldið í verslun Veiðiflugna á Langholtsvegi 111 og byrjar kl 18.00 - 21.00
hér er hægt að kaupa hnýtinganámskeið http://veidiflugur.is/is/vorur/flokkur/hnytinga-namskeid
Veiðiflugur hafa lagt metnað sinn í að hafa til sölu allt efni sem notað er í algengustu flugur sem notaðar eru á Íslandi. Núna gerum við enn betur og við höfum pantað ótrúlegt magn af efni fyrir hnýtingaveturinn.
Veðiflugur voru með skemmtilega nýjung síðasta vetur sem naut gríðarlegra vinsælda og við kölluðum Félagsheimili Fluguhnýtara. Félagsheimili Fluguhnýtara gekk út á að hafa þekkta hnýtara á hverjum laugardegi sem miðluðu af reynslu sinni í fluguhnýtingum. Þetta var ótrúlega vel sótt og munum við halda þessu áfram núna í vetur.
Fyrsti laugardagurinn í Félagsheimili fluguhnýtara verður laugardaginn 14 janúar og ríður Sigurberg Guðbrandsson á vaðið. Hann er frábær hnýtari og hefur hannað mjög áhugaverðar flugur sem eru að stimpla sig inn í veiðinni. Sigurberg hefur flottan hnýtingastíl og er frábær veiðimaður.
10.01.2012 17:35
fréttir og fleira
það er eitt og annað sem er búiða að ganga á í þjófélaginu síðustu mánuði og er það þá kanski allra helst ofurtilboð í hinar og þessar sprænur á vítt og dreif um landið og þar trjónir Þverá/kjarrá á toppnum. Samkvæmt heimildum er verið að tala um 120-130 millur og kemur dagstönginn till með að hækka töluvert á komandi sumri. Enn þetta er ekki eina hækkunin því eftir að hafa skoðað veiðileifamarkaðinn þá virðist vera að allar sprænurnar hér á landi séu að hækka en þó mismikið og einhvað stendur í stað.
Hér má sjá löndun á lax í þveránni enn þessi löndun kemur til með að kosta einhverja hundruði þúsund kalla í júlí næstkomandi :)
Nú er svo tilkomið að Veiðibúðin við lækinn skiptir um hendur, en svo kemur fram á heimasíðu Vötn og Veiði
búðin endaði hjá þeim hjónum Maríu Önnu Clausen og Ólafi Vigfússyni og óskum við þeim til haminjgu með nýjustu búðina í flóru þeirra.
hægt er að lesa fréttina í heild sinni hér
10.01.2012 17:18
Fréttir og fleira
einsog kemur fram hér að ofann er hafin útsala hjá þeim hjónum í Veiðiflugum.
Það er um að gera fyrir veiðimanninn að drífa sig af stað og ná í gott stuff fyrir sumarið.
Við strákarnir í Stórlöxum höfum orðið mikla reynslu af þessum vörum hjá þeim og
þær standast allar kröfur og við mælum eindregjið með þeim klikkið hér til að skoða nánar
Bestu kveðjur
23.12.2011 18:02
Jóla Jóla Jól
Við storlaxar óskum öllum veiðimönnum-konum og öllum því skrítna fólki sem ekki hefur gaman af veiði Gleðilegra Jóla og farsældar á komandi ári :) og óskum þess að komandi ár færi okkur margar skemtilegar stundir við árbakkan og hruni á veiðileyfaverði :)
29.10.2011 14:50
Aðaldalur
Jæja myndir komnar inn úr laxá í Aðaldal endilega kíkja :)
![]()
28.10.2011 16:34
Rjúpa
23.10.2011 16:44
Nýtt Myndband
Nýtt youtube myndband komið inn, endilega kíkja á það. Lax-á í Aðaldal 2011 enjoy !
Inn í veiðivideo :-)
Strákarnir hressir í lok veiðiferðar :)
22.10.2011 14:23
Sjóbirtingur
Góðan og blessaðan.
Við storlaxarnir skelltum okkur á sjóbirtingsslóðir í gær fengum 6 kvikindi í blíðskapar veðri. En enn er beðið eftir að Frances komi myndböndunum inn á youtube, þetta hlýtur að fara koma hjá honum. !
Herna eru 2 myndir af Laxman og Frances með væna birtinga,, annar 1,5kg og hinn 4kg grálúsugur :) næs þetta er svo gaman :)
12.10.2011 21:48
Ótitlað
Nú er vertíðinni formlega lokið hjá okkur í Stórlöxum og er ekki seinna vænna enn að setjast niður í smá pistil með ískaldann golde í vinstri.
Sumarið hjá okkur var í flest alla staði mjög gott og við veiddum að vana mikið og vorum einnig mikið við leiðsögn viða um land.
Að svo stöddu er video-klipparinn á fullu þessa dagana í að klippa og gera myndböndin sem allra best fyrir ykkur kæru lesendur, einnig eru fullt af myndum á leiðinni inn á vefinn úr Aðaldalnum, norðurá, langá, kvíslinni og svo leingi mætti telja.
það komu nokkrir 20-pundarar á land hjá okkur í sumar og flestir þeirra af nessvæðinu.
við héldum innanfélags kostningu um mann sumarsins og fékk þessi maður hér á myndinni fyrir neðann öll atkvæðinn.
til hamingju með titilinn Ari.
jæja þá er það ekkert meira sem ég hef að seigja enn þetta er allt að koma......
04.09.2011 15:04
Veiðiferð
Við bræðurnir Gæi og Laxmann fórum snemma morguns í veiðiferð.
Haldið var á eitt öflugasta veiðisvæði landsins Staðsett í 64°57N og 23°50V...
Ekki leið á löngu þar til ein falleg hrygna lét sjá sig fært um að heilsa uppá okkur bræðurna og náðist hún á "land", Fékkst hún í þeim margrómaða og umtalaða stað hérna á nesinu "Nasanum" og þar er sko ekkert kjaftæði, þar er stranglega bannað að sleppa veiddum fiski. Eins og sést á meðfylgjandi mynd er þetta fallegur fiskur.
Þessi mynd er höfundarréttarvarin og er því stranglega bannað að birta hana nema með leyfi frá Stórlöxum
Þessi hrygna reyndist vera 92 CM, Og eftir ítarlegar símhringingar fékkst ekki sérstakt leyfi til að sleppa fisknum því var hann drepinn.. Ævintýrið hélt áfram langt fram eftir degi og þar til líða tók á kvöldið. Getum allavegana orðað það þannig að til þurfti stórar vinnuvélar við að koma aflanum uppí hús.
Þangað til næst..
Kv Stórlaxar
27.06.2011 18:13
Langá
Góðan og margblessaðann !
Nú er tæpur sólarhringur þangað til við félagarnir förum að renna fyrir lax. Fyrsta áin í sumar verður Langá á mýrum falleg á sem SVFR býður félagsmönnum sínum og öðrum uppá. Tveir frændur Stórlaxanna voru við veiðar í morgun og seinnipartinn í gær, ekki réðist hann á flugurnar hjá þeim félögum. En þeir lönduðu engu að síður 1 laxi og misstu nokkra. Einn af meðlimum Stórlaxa dreymdi í nótt að hann hafi dottið ofan í fullt baðkar af skít, eins og allir vita sem hafa séð nýtt líf þá boðar það mokfiskerí, og eitt er víst að nokkrir draumstautar verða með í för :) Skelli inn einni mynd af nóra nött eftir löndun í Bárðarbungu fyrir nákvæmlega ári síðan.
16.06.2011 15:21
etta er allt að koma
Nú er kominn upp sá tími að menn eru farnir að huga af veiðidóti sínu og byrjaðir að undirbúa fyrstu ferð sumarsins, ekki leiðinlegt það :)
Eins og kom framm hjá okkur í síðasta bloggi vorum við stórlaxar í soginu með Klaus F. og reyndi hann hvað hann best gat að kenna okkur RÉTTU tökinn á tveggja handa prikinu,
Eftir um fjagra tíma baráttu við okkur náði hann loks að sætta sig við það að við gætum ekkert kastað........
Smá djók.
við lærum helling af honum og erum útskrifaðir kast snillingar með meiru eftir þennann dag.

hér er LAxman að spreyta sig með tvíhenduna.
Nú eru menn orðnir all verulega spenntir enda ekki nema 12 dagar í fyrsta túr sem verður í langá í 2 daga og svo beint í laxá í dölum á eftir í 2 daga.
Útlitið er ágætt og má reykna með að langáinn verði orðinn pökkuð af fiski þegar við mætum í hana spenntir með kærleiksbros á vör og tuborg gold í vinstri og prikið í hægri.
ég hef nú ekki mikið meira að seigja í bili, enn það verður uppdate eftir hverja vakt hér á síðunni okkar.
þesss má til gamans geta að við ætlum að hafa keppni innan félagsins um hver af okkur landar fyrsta lax sumarsins.
bestu kveðjur
- 1
- 2


